þriðjudagur 27. janúar 2026
Seint í gærkvöldi bar Stjarna í fimmta skipti, tvíkelfingum. Hún er því búin að eignast 10 kálfa í 5 burðum, 8 kvígur og tvö naut. Burðurinn í gærkvöldi gekk vel, sá um það sjálf, án utan að komandi aðstoðar. Það komu tvær kvígur, sem hafa fengið nöfnin Pandóra og Díóna, en við höldum okkur við "stjörnufræðina" eins og í fyrri nafngiftum afkvæma Stjörnu, en Pandóra og Díóna eru í hópi hundruða fylgitungla Satúrnusar. Þess má geta, að Stjarna er þriðja elsta kýrin í fjósinu hjá okkur.