Fjölgun í stóðinu
þriðjudagur 9. júní 2026
Í nótt kastaði Fjóla merfolaldi. Meðfylgjandi myndir voru teknar í morgun þegar mannfólkið var komið á stjá. Litlu hryssunni hefur verið gefið nafnið Freyja. Það eru nokkrar líkur á því að hún verði grá þegar fram líða stundir, eins og móðir hennar.