fimmtudagur 6. maí 2021
Síðast liðinn sunnudag byrjuðum við að setja nýtt járn á "fjárhúshlöðuna", en gamla járnið var farið að láta á sjá, enda um 45 ár síðan húsið var byggt. Náðum við að klára suður hliðina í björtu og góðu veðri. Vonumst til þess að geta tekið norður hliðina fljótlega, en það ræðst af veðri og tíma "verkamannanna".