fimmtudagur 10. september 2026
í dag kom Högni að snyrta klaufir, en það er hluti af þeirri viðleytni okkar að tryggja að kúnum líði vel. Að þessu sinni voru snyrtir 260 fætur (og nú getið þið reiknað út hvað margar kýr eru bak við þennan fótafjölda). Blessaðar kýrnar taka þessu misvel, en flestar eru furðu rólegar, þrátt fyrir hávaðan og atið sem fylgir þessu. Á meðfylgjandi myndum má sjá hluta af umstanginu sem tilheyrir.