Sunday 22. November 2026
Í skammdeginu fer hugurinn stundum á flug. Fékk þá hugdettu að garfa í ættartölum og ábúendasögu í Káranesi. Eftir nokkra leit á alnetinu og í "Kjósarmönnum", komst ég að því, að á árunum 1645 - 1670, bjó í Káranesi Jón Sigurðsson, oft nefndur "bartskeri". Hann var m.a. umboðsmaður Skálholtsstaðar og Brynjólfs bikups Sveinssonar yfir jörðum staðarins.
Hann varð þekktur fyrir sáralækningar og var um tíma "skólalæknir" í Skálholti, þá til hans náðist. Þá eru til heimildir um vitjanir Jóns austur á Fljótsdalshérað og í Hornafjörð. Höfundur Fitjaannáls lýsir Jóni m.a. með þessum orðum: "Var mörgum dyggðum gæddur, græddi margan, elskaður og virtur af landsins fólki".
Meðal barna Jóns og Önnu Jörundsdóttur konu hans, var Oddur prestur, m.a. á Reynivöllum í Kjós.
Jón er forfaðir núverandi eigenda Káraness í 11. lið.
Sama ættin hefur því setið Káranes með hléum í 381 ár.
Þessum texta hefur verið bætt við kafla hér á síðunni sem heitir "Sagan".
Heimildir: Kjósarmenn (höf. Haraldur Pétursson), Íslendingabók.