miðvikudagur 7. október 2026
Í dag kláruðum við heyskapinn þetta árið. Slóum tæpa 6 hektara af rýgresi í gær, og í dag var tekið saman, rúllað og pakkað, samtals tæpar 50 rúllur. Veðrið var okkur ekki hagstætt í dag, gekk á með skúrum en sól á milli skúra. Gærdagurinn var betri en þá var stillt og heiðskírt allan daginn.