þriðjudagur 28. apríl 2026
Það er víst það nýjasta hjá veðurfræðingum að kalla úrhellis rigningu, úrkomu ákefð. En við hér í sveitinni höldum okkur áfram við úrhellið, sem sannarlega átti við í nótt og í dag. En eins og sjá má á meðfylgjandi myndum fór Bugða upp úr farvegi sínum ofan við Bolteyrina og flæddi yfir í gamlan farveg niður með túninu.